Fundargerð sem skrifar sig sjálf
Hearkeeper tekur upp fundinn á Makkanum og skrifar samantekt, ákvarðanir og verkefni um leið og honum lýkur. Hver lína vísar á sekúnduna þegar það var sagt.
Einhver þarf alltaf að skrifa fundargerðina. Sá sem gerir það tekur minni þátt í fundinum, og þegar fundargerðin loksins berst man enginn hver átti að gera hvað. Hearkeeper gerir fundargerðina fyrir þig, á þinni eigin tölvu, svo þú getur einbeitt þér að fundinum sjálfum.
Svona verður fundargerðin til
1. Allir fá að vita af upptökunni
Hver upptaka hefst á samþykkisskrefi. Þú lest stutta tilkynningu upp, setur hana í spjallið eða gerir hvort tveggja. Samþykkiskvittun er vistuð með upptökunni: hvenær var sagt frá, hvernig og hve mörg vissu af því. Þannig geturðu alltaf sýnt hverjum var sagt frá og hvenær.
Upptökustikan er alltaf efst á skjánum, sést í skjádeilingu og á skjámyndum, og það er enginn hnappur til að fela hana. Það er viljandi.
2. Hearkeeper tekur upp báðar hliðar
Forritið tekur upp hljóðnemann þinn og hljóð tölvunnar beint á Makkanum. Enginn upptökuþjónn bætist við fundinn og enginn annar þarf að setja neitt upp. Það virkar með Zoom, Google Meet, Microsoft Teams, Slack, Webex og FaceTime, og líka þegar fundurinn er haldinn í fundarherberginu.
3. Uppskrift á meðan og eftir
Á meðan fundurinn stendur birtist texti um tveimur til fjórum sekúndum á eftir þeim sem talar. Þegar þú stöðvar upptökuna fer fram lokayfirferð með Whisper large-v3 turbo, sem greinir líka hver sagði hvað. Klukkustundarfundur á íslensku er skrifaður upp á innan við sex mínútum á Mac með Apple-örgjörva.
Íslenskan er í fyrsta sæti, og ef fundurinn flakkar milli íslensku og ensku greinir Hearkeeper það sjálft. Nánar um það á síðunni um íslenska talgreiningu.
4. Samantekt, ákvarðanir og verkefni
Upptaka af fundi ein og sér er klukkutími sem enginn nennir að hlusta á aftur. Þess vegna les mállíkan á tölvunni uppskriftina og skrifar sjálfvirka fundargerð með gervigreind:
- Samantekt um það sem var rætt og hver niðurstaðan varð.
- Ákvarðanir sem voru teknar, hver í sinni línu.
- Verkefni með því hver á að gera hvað og fyrir hvenær.
Hver lína vísar á sekúnduna þegar það var sagt. Ef þú ert ekki viss hvort Ari lofaði öryggisrýninni fyrir sjöunda eða fjórtánda smellirðu á línuna og hlustar. Gervigreindin skrifar drögin en upptakan er alltaf til staðar til að skera úr.
Þínar eigin glósur blandast inn í fundargerðina, og þú getur spurt spurninga á meðan á fundinum stendur („Hver sér um útgáfupóstinn?“) eða seinna, þvert á alla fundi.
Allt á Makkanum
- Engin upphleðsla. Uppskrift, samantekt og leit keyra á tölvunni. Ekkert er sent annað nema þú tengir teymisþjón eða þinn eigin API-lykil.
- Enginn API-lykill. Mállíkanið sem skrifar fundargerðina keyrir staðbundið.
- Virkar án nets. Í flugvél, í sumarbústað eða í fundarherbergi með lélegt Wi-Fi.
- Þínar eigin skrár. Leitin er í einni SQLite-skrá á disknum þínum og hljóðið og glósurnar eru í þinni möppu.
Flytja út í Markdown
Fundargerðin er ekki læst inni. Þú flytur hana út í Markdown og setur hana hvert sem þú vilt: í skjalasafn félagsins, í wiki-síðu teymisins eða í tölvupóst til þeirra sem mættu ekki.
Nokkur góð ráð þegar þú tekur upp fund
- Segðu frá í upphafi, og settu það líka í fundarboðið. Samkvæmt fjarskiptalögum nr. 70/2022 (91. gr.) á sá sem vill hljóðrita símtal að segja viðmælanda sínum frá því í upphafi.
- Leyfðu fólki að andmæla. Ef einhver vill ekki vera tekinn upp skaltu finna aðra leið, til dæmis að skrifa fundargerð í höndunum þann hluta fundarins.
- Geymdu ekki lengur en þarf. Eyddu upptökunni þegar fundargerðin er samþykkt ef ekki er ástæða til að geyma hana.
Persónuvernd hefur úrskurðað að leynileg hljóðupptaka samrýmist ekki kröfunni um að persónuupplýsingar séu unnar með gagnsæjum hætti (úrskurður í máli nr. 2018/1741). Hearkeeper er smíðað til að upptakan fari aldrei fram hjá neinum.
Hvenær get ég byrjað?
Hearkeeper er ekki komið út. Það kemur fyrst á Makkann (macOS 14.2 eða nýrra, Apple-örgjörvar og Intel). Hvað vefurinn geymir um þig sérðu á persónuverndarsíðunni.
Viltu hætta að skrifa fundargerðir sjálf eða sjálfur? Skráðu þig á biðlistann og við látum þig vita þegar Hearkeeper er tilbúið.