Um Hearkeeper

Hearkeeper tekur upp fundi og fyrirlestra og geymir allt á þínum eigin Mac. Það er smíðað í Reykjavík af Drangalia ehf.

Síðast yfirfarið:

Af hverju Hearkeeper er til

Flest forrit sem skrifa fundargerðir með gervigreind virka eins: upptökuþjónn bætist við símtalið, hljóðið fer á netþjóna einhvers annars og fólkið á fundinum veit það oft ekki. Það er þægilegt, en það er líka mikið að biðja um þegar samtalið snýst um viðskiptavin, sjúkling, laun eða fyrirlestur.

Hearkeeper fer hina leiðina. Það tekur upp hljóðnemann og hljóð tölvunnar á þínum eigin Mac, skrifar það upp þar og býr til samantekt, ákvarðanir og verkefni þar líka. Ekkert er sent annað nema þú tengir teymisþjón eða þinn eigin API-lykil. Og af því að það er alvarlegt mál að taka fólk upp sér Hearkeeper til þess að allir viti af því.

Það sem við gefum ekki eftir

  • Tölvan þín fyrst. Forritið virkar að fullu án nets og sendir ekkert nema þú setjir það upp.
  • Upptaka er alltaf sýnileg. Hver upptaka hefst á samþykkisskrefi og geymir kvittun. Upptökustikan er alltaf á skjánum, sést í skjádeilingu og er ekki hægt að fela. Það verður aldrei til „ósýnileg“ stilling.
  • Íslenskan í fyrsta sæti. Hearkeeper er smíðað á Íslandi og íslenskan fær sömu natni og enskan. Það skrifar líka upp 98 önnur tungumál.
  • Engin vefmæling sjálfkrafa. Ef við biðjum einhvern tímann um notkunargögn verður það valfrjálst og skráð.
  • Gögnin þín eru þín. Hljóð og glósur eru þínar eigin skrár og glósur má flytja út í Markdown.

Hverjir smíða það

Hearkeeper er smíðað af Drangalia ehf., litlu hugbúnaðarfyrirtæki í Reykjavík sem Birkir Laufdal Arnarsson stofnaði. Biðlistinn ræður því hverjir prófa fyrst, og manneskja les hvern póst sem við fáum.

Staðan

Hearkeeper er í lokuðum prófunum á Mac (macOS 14.2 eða nýrra, Apple-örgjörvar og Intel). Önnur stýrikerfi koma á eftir. Verð verður kynnt fyrir útgáfu. Viltu prófa snemma? Skráðu þig á biðlistann og við látum þig vita þegar útgáfa er tilbúin fyrir þig.

Hafa samband

Skrifaðu á hello@hearkeeper.com. Um meðferð gagna biðlistans má lesa í persónuverndaryfirlýsingunni.

Prófaðu Hearkeeper fyrst

Einkaglósur af fundum og fyrirlestrum, gerðar á þínum eigin Mac. Skráðu þig á biðlistann og við látum þig vita þegar það er tilbúið.

Einn póstur þegar það er tilbúið, ekkert annað. Þú getur hætt hvenær sem er. Persónuvernd